Blogg
17.2.2010
2010!
Loks er hinum langþráðu tímamótum sem eldri prinsessan hefur beðið eftir frá því 24. maí 2009 lokið, nefnilega jól og áramót! Við nutum að sjálfsögðu jóla og áramóta í faðmi fjölskyldunnar en það að þeim sé lokið þýðir að afmælið hennar nálgast. Svo til vikulega biður hún um nákvæma útlistun á fjölda mánaða, vikna og jafnvel daga fram að afmælinu sínu (mamman því orðin nokkuð æfð í margföldun
). Annar mælikvarði er svo hverjir eiga eftir að eiga afmæli í millitíðinni og sú upptalning er oft mjög skrautleg þar sem lang flestir ættingjar virðast hafa fæðst á fyrstu 5 mánuðum ársins en fáir á þeim síðustu 5. Röð afmælisdaga hjá fjölskyldunni er henni mjög að skapi þar sem hún er fyrst í röðinni, þá Júlía, Ísarr, pabbi og loks mamma sem rekur lestina. Þegar hugað er að stórfjölskyldunni er hins vegar allt annað uppi á teningnum, fyrst er það Þórunn, Siffý, Vala Kristín, afi Pétur, Haukur, afi Siggi, Andrés og Ásta og svo loks prinsessan sjálf.
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 27410
Samtals gestir: 8677
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 14:06:36
