Blogg

25.10.2009

Skoðanir, útlönd og skírn..

Einu sinni enn lofum við bót og betrun en svo gerist ekki neitt.
Það er búið að vera rosalega mikið að gera hjá okkur litlu, ja eða stóru núna, fjölskyldunni undanfarið.
Minnsti strumpur fór í 6 vikna skoðun í byrjun september á heilsugæslustöðinni og reyndist vera orðinn 5.275 grömm og 60 sm langur. 3 vikum síðar kíkti hjúkrunarfræðingurinn svo í heimsókn til okkar aftur í 9 vikna skoðunina og reyndist sá stutti þá vera orðinn heil 5.830 grömm (til samanburðar var Sara 5.550 grömm í 9 vikna skoðuninni sinni og Júlía um 5.160 grömm).
Við stubburinn kíktum svo í heimsókn einn daginn til hennar Stefaníu sem gerði sér lítið fyrir og tók þessar rosalega fínu myndir af honum, þar á meðal þá sem príddi boðskortin í skírnina.



Litli stubbur skrapp svo með mömmunni í smá utanlandsferð í Október, aðeins til að viðra sig í útlandinu og versla nokkrar jóla- og afmælisgjafir. Ekki seinna vænna en að bætast í hóp sigldra einstaklinga, orðinn 3ja mánaða. Flugið gekk mjög vel í báðar áttir, svo vel að á heimleiðinni hraut guttinn alla leiðina emoticon  Við skellum inn myndum frá ferðinni seinna.

Í dag var svo sjálf skírnin og skírnarveislan. Við byrjuðum í Garðakirkju á Álftanesi þar sem séra Hans Markhús skírði drenginn og við gáfum honum nafnið Sigurður Ísarr. Hér er mynd af fjölskyldunni ásamt skírnarvottunum og prestinum:



Að því loknu skottuðumst við heim í heiðarból þar sem biðu nokkrar kökur og tilheyrandi.
Hafdís frænka og Kata frænka stóðu vaktina í eldhúsinu ásamt ömmu Guðrúnu, svo mamman vissi varla í hvorn fótinn hún átti að stíga til að byrja með, en var nokkuð fljót að átta sig og skemmti sér hið besta við að spjalla við gestina sem er eiginlega alveg ný reynsla. Hér er mynd af skreytingunni sem Sigga Björk frænka (í Blómalist) útbjó og kertinu sem við keyptum hjá nunnunum í Hafnarfirðinum.



Hvað afmælishugleiðingar varðar var eiginlega bara ákveðið að salta þær alveg þetta árið þar sem mamman hefur nú átt eins og 27 aðra afmælisdaga og því í raun ekkert nýtt við þann tuttugastaogáttunda. Hún fékk engu að síður afmælisgjöf frá pabbanum sem hitti beint í mark! emoticon
Jæja, nóg í bili... meira seinna.
Kveðja, Sigurður Ísarr og mamman

Skrifað 25.10.2009 kl. 21:16 af Mömmunni

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 27477
Samtals gestir: 8710
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 16:37:03