Blogg
16.7.2008
Ekki mikið...
...að gerast hjá okkur núna...
Tölvan hennar mömmu fór aftur til Opinna Kerfa í viðgerð og viðgerðarmaðurinn sagði að nú væri móðurborðið farið - aftur... það gerðist einmitt í ágúst/september í fyrra og þá var hún tölvulaus í mánuð... Við erum að horfa fram á allavega 3 vikur núna, nema að til þess komi að hún fái nýja tölvu (sem samkvæmt viðgerðarmanninum gæti verið). *Krossumfingur*
Af þessum orsökum verður ekkert af mynda-innsetningu þar til tölvan kemur úr viðgerð.
Annars er það að frétta að Júlía er að fá 2 tennur í viðbót.. það eru framtennurnar uppi, svo nú minnir hún ekki á dverg-vampíru lengur þegar hún brosir út að eyrum eins og hún gerir mest allan daginn.
Prinsessurnar skemmta sér hið besta heima hjá pabbanum allan daginn... liggur ekkert á að fara aftur til dagmömmunnar / í leikskólann...
Jæja, nóg í bili... sjáumst

9.7.2008
Kominn tími á...
...smá fréttir frá okkur.
Við byrjuðum sko að skrifa þessa færslu fyrir lööööngu síðan en svo er bara búið að vera svo mikið að gera að það hefur enginn getað klárað hana.
Mamma var meira að segja byrjuð að setja inn myndir og allt, en svo fór allt í klessu af því að tölvan hennar bilaði (einu sinni enn) og þurfti að fara í smá heimsókn til Opinna Kerfa. Hún er reyndar ennþá biluð (eftir viðgerðina) en við erum svona að melta það hvort við nennum að fara með hana aftur til þeirra...
Nú er rúmur mánuður frá afmælinu mínu og afmælið hennar Júlíu er bara alveg rétt bráðum. Mamma er að fara yfir um, finnst allt of stutt á milli afmælanna.
Afmælisveislan mín var alveg rosalega flott. Við grilluðum hamborgara og pylsur handa öllum og ég fékk svo mikið af gjöfum að mamma þurfti að hreinsa megnið af dótinu mínu út úr herberginu svo að þetta nýja kæmist fyrir.
Við erum búin að vera á fullu út um allt. Fórum í mat fyrir síðustu helgi til Kjartans, Andreu, Ásgeirs og Birgis og fengum alveg rosalega góðan kjúklingarétt. Erum svo auðvitað búin að vera í matarboðum hjá báðum ömmum og öfum öðru hvoru.
Mamma og pabbi skruppu aðeins um daginn á meðan við vorum sofandi og þá kom Ásta frænka og passaði okkur í smá stund. Júlía rumskaði og var sko ekki sátt þegar frænkan ætlaði að gefa henni pela, hún bara gargaði á pelann, vildi ekki sjá hann!
Vala Kristín kom líka í pössun til okkar í smá stund einn daginn og skemmti sér voða vel við að rétta litlu frænku sinni (Júlíu) dót í tíma og ótíma... knúsa hana og gefa henni duddu.
Við tókum myndir af Völu fyrir ekkert allt of löngu síðan og þyrftum eiginlega að skella inn eins og einni eða tveimur og monta okkur svolítið bráðum...
Ömmur og afar hafa verið voða dugleg við að fara til útlanda og koma alltaf færandi hendi til baka, okkur til mikillar gleði... prinsessurnar alltaf klæddar eins og alvöru prinsessur þessa dagana
Ásdís sendi okkur pakka um daginn, alveg rosalega flotta handprjónaða peysu á Júlíu, með nafninu hennar í munstrinu og allt. Mamma getur ekki beðið eftir að það kólni aðeins í veðri svo hún geti klætt okkur systurnar í matching peysur (ala Ásdís 'frænka').
Við erum að spá í að búa til möppu fyrir myndir af handgerðum gjöfum sem við fáum... alltaf svo gaman að fá svona gjafir.
En talandi um gjafir þá er alltaf verið að spyrja okkur hvað prinsessurnar vantar og ætlar mamma því að fara að taka sig til og endurnýja óskalistana á síðunni.
Svo kom löngu týnd vinkona í leitirnar í vikunni, þegar hún Helena kom í heimsókn til okkar frá Baunaveldinu, mömmu til mikillar gleði og ætla þær því að vera einstaklega duglegar við að gera allt mögulegt saman.
Af mér er það að frétta að mér fer rosalega mikið fram, ég hef gífurlegan orðaforða og er alltaf alveg rosalega dugleg. Rétt fyrir sumarfrí skipti ég um deild á leikskólanum, er farin af Sólgarði (af því að deildarstjórinn er að hætta og rosalega mikið af börnunum líka) og er á Fífu núna. Mér líkar það ágætlega og mamma heldur að aldursdreifingin á þeirri deild henti mér ef til vill betur.
Júlía er alltaf spræk, hún fékk að vísu illt í eyrun sín í síðustu viku og fékk meðal við því. Hún stendur upp við allt og alla og tekur eitt og eitt skref, en ekki nema einhver haldi í aðra höndina á henni. Hún gengur meðfram öllum borðum og finnst voða gaman að standa upp við göngugrindina sína og ýta henni á undan sér. Hún er alveg jafn takkaóð og systir hennar var og er og foreldrarnir því í fullu starfi við að forða fjarstýringum og ferðatölvum úr fikt-færi.
Báðar prinsessurnar eru algjör útidýr og líður hvergi betur en utandyra. Sú eldri eyddi 2 dögum í vikunni í hjólhýsi með ömmu og afa og fannst svona roooooosalega gaman! Bíður alveg spennt eftir því að geta farið aftur.
En jæja, kominn tími til að vinna svolítið og skipuleggja afmælisveislu... Ætlar þú að koma?

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 27474
Samtals gestir: 8709
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 13:57:39