Blogg
29.5.2008
3ja ára skvísa
Myndin var reyndar tekin daginn fyrir afmælið, á leiðinni í leikskólann...

21.5.2008
Afmælis-smafmælis-veisla
Við gleymdum alveg að skrifa það sem síðasta færsla átti að fjalla um...
Það er að sjáfsögðu afmælisveislan sem halda á um helgina... Við sendum út boðskortin til flestra í síðustu viku en eigum enn eftir að senda á nokkra. Þeir sem eru ekki búnir að fá kort mega endilega hafa samband við okkur og láta vita!
Það á bara eftir að vera rosa gaman hjá okkur og vonandi fáum við gott veður..
Lítið annað var það hjá okkur í bili.. skrifum meira seinna.

20.5.2008
Afmæli smafmæli
3ja ára afmælið nálgast óðum!
Eldri prinsessan er komin ansi nálægt 3ja ára markinu... svo nálægt að hún er nú þegar farin að baða sig í sviðsljósinu sem óneitanlega fylgir svo merkum áfanga.
Hún spyr núna daglega... er ég ennþá tveggja ára? Er ég orðin þriggja ára?
Hún er líka rosalega dugleg að leika orðaleiki við mömmu sína. Sá vinsælasti er "andstæður" og felst í því að mamman segir orð og prinsessan segir hvaða orð er andstæðan við það. Stundum er samt svolítill púki í henni, til dæmis er hér smá sýnishorn af því:
Mamman (M); Úti
Sara (S); Inni
M; Uppi
S; Niðri
M; Svart
S; Hvítt
M; Heitt
S; Kalt
M; Mikið
S (með prakkarasvip); NAMMI !
Af yngri prinsessunni er það að frétta að hún hefur sagt skilið við bakkgírinn og skríður nú út um allt þessu hefðbundna skriði. Hún myndar sig við að standa upp við allt sem hægt er en þyrfti þó að endurskoða hlutina sem hún velur sér til stuðnings því það eru iðullega hlutir á hjólum sem hún velur að styðja sig við... ekki sérstaklega stöðugt.
Hún fékk 2 tennur í neðri góminn um 8,5 mánaða aldurinn og um 9,5 fékk hún svo fyrstu tönnina í efri góm. Það var þó ekki hefðbundin framtönn heldur tönnin vinstra megin við framtennurnar. Það hindrar hana þó ekki í að beita tönnunum óspart á allt sem fyrir verður, við misjafnar undirtektir foreldranna... Ái!
Jæja, nóg í bili..

13.5.2008
Myndataka...
Tókum þessar myndir um helgina...

Hvernig finnst ykkur?
Hvernig finnst ykkur?
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 16
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 27410
Samtals gestir: 8677
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 14:06:36