Blogg
28.3.2008
Steingleymdum
að segja frá því að við fórum í skírn um daginn, til litla frænda. Hann fékk voða fínt nafn og við fengum voða fína köku 
- Til hamingju með nafnið Birgir Hrafn -
Helgina fyrir páska hitti eldri skvísan svo litla/stóra stelpu sem Berta á. Hún heitir Guðrún Jana. Saman fóru þær niður á tjörn í Hafnarfirði og gáfu öndunum brauð og fengu svo að leika sér á leikskólanum sem er við hliðina á Lækjarskóla. Þær skemmtu sér hið besta og stendur til að endurtaka leikinn fljótlega aftur 
Vinkona skottanna átti tveggja ára afmæli um daginn og óskum við henni innilega til hamingju með það!
- Til hamingju með afmælið Ísabella -
Í gær átti líka litla frænka, eins árs afmæli. Við hittum hana nú ekki neitt í gær, en förum í afmæli til hennar á Sunnudaginn (vel "þunn" eftir árshátíð í vinnu pabbans á Laugardeginum) og kissum hana og knúsum þá!
- Til hamingju með afmælið Vala Kristín -
Í byrjun Apríl förum við svo í aðra skírn, til lítillar frænku. Hún er komin með voða sætt nafn og hlökkum við mikið til að kíkja á litlu rúsínuna...
- Til hamingju með nafnið Angela Ísabella -
27.3.2008
Sorry sko...
Það er heilmikið í fréttum hjá okkur núna og nei, það er ekki viðbót við fjölskylduna! Okkur finnst alveg nóg að vera 4 í augnablikinu, meira en full vinna að hugsa um svona 2 aktívar skvísur.
Karlotta og Kiddi eru búin að kíkja til okkar í mat öðru reglulega og höfum við rosalega gaman af því, ekki síst Sara sem græddi páskaegg frá þeim
Sem stendur er mamma hennar Karlottu að láta föndra svolítið fyrir okkur í útlandinu sem verður vonandi rosa flott 
Söruskott ákvað sjálf um páskana að hætta að nota snuddu, tilkynnti pabbanum það þegar hún var að fara að sofa og gripum við því tækifærið og fjarlægðum allar gúmmídruslurnar (sílíkon- í hennar tilviki) svo hún væri ekki að freistast til þess að stinga þeim upp í sig í tíma og ótíma. Það gekk ágætlega, hún hætti nokkrum sinnum við að hætta en fékk ekki snuddurnar aftur og eftir 2 daga var hún alveg hætt að spyrja hvar þær væru.
Júlía er farin að sitja eins og herforingi og róta í öllu dóti sem hún nær í. Það sást best um daginn þegar hún heimsótti ömmu Völu og dundaði sér heillengi sitjandi á gólfinu, hálf ofan í dótakassanum!
Við ákváðum að elta aðra íslendinga við skuldsetningar í neyslukapphlaupinu og láta helluleggja hjá okkur. Það gengur mjög vel og allt að taka á sig fína mynd. Allir að kíka til okkar á herlegheitin í lok maí... meiri upplýsingar um það seinna.
Fjölskyldan fékk svo ógrynni páskaeggja, eða næstum því... Mamman tvö, pabbinn tvö og stelpurnar fjögur saman. Það var nú ekki mikið af þeim borðað um páskana, 3 minnstu eggin, svo að sem stendur er ísskápurinn fullur af páskaeggjum (jafnvel þó að dagmömmunni hafi verið gefið eitt af stelpu-eggjunum). Það er nú kannski samt vert að geta þess að við keyptum ekki eitt einasta... þetta var allt frá vinnunum!
Jæja, nóg röfl í bili... Heyrumst!
5.3.2008
Fjör...
Karlotta og Kiddi kíktu í heimsókn og við ákváðum að elda pasta saman... enda báðar "húsmæðurnar" búnar að kaupa í pastarétti daginn áður... Þá áttu Kjartan, Andrea, Ásgeir og Birgir leið í Hafnarfjörðinn og ákváðu að kíkja við í heimsókn hjá okkur og enduðu á að vera bara í mat líka... Það var mjög gaman og elstu grislingarnir skemmtu sér hið besta - mikið fjör hjá þeim hlaupandi um allt!
Myndirnar eru aaaalveg á leiðinni...
4.3.2008
Update...
Allir svona sæmilega hressir - í bili. Stefnum á að kíkja á Hannes háls-, nef- og eyrnalækni með litlu prinsessuna til þess að skoða eyrun betur.
Það var árshátíð í vinnunni hjá mömmunni um helgina og var mikið um dýrðir... mjög flott í alla staði. Mikið var lagt upp úr að allt væri sem glæsilegast, þar sem þemað var Óskarsverðlaunahátíðin og sá mamman um að redda flottustu bílum flotans til þess að ferja liðið í gleðina, og tókst bara nokkuð vel til...
Litla prinsessan byrjaði 5 mánaða að velta sér yfir á bakið ef hún var sett á magann, 6 mánaða var hún farin að velta sér á alla kanta og 7 mánaða er hún farin að sitja. Ef hún er sett á magann rennir hún sér um allt og snýr sér til þess að komast að því dóti sem hana langar í. Þó er hún alltaf í bakkgírnum og er allsendis ósátt við það að fjarlægjast alltaf það dót sem henni líst á og ætlar sér að krækja í.
Lítið annað í fréttum í bili... bara aðeins að láta heyra í okkur. Skellum inn myndum fljótlega.

