Blogg
31.10.2007
Við erum enn hér...
... og þið greinilega líka 
Eyddum deginum í dag í smá verslerí, keyptum 66°N útigalla á pabbann svo hann geti nú skottast með eldri skottunni á róluvöllunum í kring án þess að vera skjálfandi á beinunum að krókna úr kulda (við búum nú einu sinni á Íslandi sko... alltaf kalt... meira að segja á sumrin). Gallinn var ansi dýr, en rosa flottur... vonum bara að hann eigi eftir að "standa undir merkjum".
Kíktum líka við í Rúmfatalagernum og fjárfestum í nýrri dýnu í rimlarúmið, leist ekki betur en svo á að setja Júlíu á þá gömlu þar sem það er búið að gubba á hana nokkrum sinnum og maður veit aldrei hversu vel tekst til við dýnu-hreinsanir. Þessi gamla verður því bara geymd og notuð til vara ef upp koma slys á þeirri nýju.
Í gær léku mamma, Júlía og Dagrún sér saman, kíktu í nokkrar föndurbúðir og matvörubúð til þess að undirbúa gærvöldið. Í matvörubúðinni hittum við svo Helgu Rakel og Maríu og það voru sko fagnaðarfundir! Í gærkvöldi komu aftur fullt af stelpum til okkar að föndra og skemmti mamma sér alveg rosalega vel... er strax farin að hlakka til næsta hittings sem er þó ekki fyrr en eftir um það bil mánuð!
Jæja... nóg af "dagbókarupptalningum" í bili...
Endilega kvitta í gestabókina (ja, eða bara athugasemdirnar)... okkur finnst alltaf gaman að heyra í ykkur.
Kveðja, prinsessurnar og mamma

28.10.2007
Nú er sumarið liðið...
er ekki eitthvað lag sem byrjar á þá leið?
Hvað um það. Við systurnar döfnum vel, Júlía alltaf jafn dugleg að drekka, ekki enn farin að heimta neitt annað og staðbetra en mjólkina og Sara er alltaf jafn dugleg við að koma fólki á óvart með orðheppni sinni.
Júlía fór í 3ja mánaða skoðun um daginn og var orðin alveg 61,5 sm og rúm 5800 gr. Fékk fyrstu sprautuna og argaði svoleiðis á lækninn með móðgunarsvip að við höldum að honum hafi orðið svolítið um og ó greyinu.
Mamma átti afmæli á fimmtudaginn í síðustu viku, fyllti loksins 26 árin (hún þakkar kærlega fyrir afmæliskveðjurnar). Hún gerði svosem ekki neitt í tilefni dagsins, en daginn eftir bakaði hún köku handa þeim sem villtust í heimsókn í sveitina, engin ráðgerð afmælisveisla þannig séð. Nú má sko byrja að telja niður dagana til jóla... (það er sko ekki leyfilegt fyrr en eftir að afmælið hennar er búið
)
Í gær fórum við svo öll fjölskyldan í keilu í Öskjuhlíðinni með Kjartani, Andreu, Ásgeiri og bumbubúanum þeirra. Það var alveg rosalega gaman, hittum akkurat á diskó-keilu. Eftir keiluna fórum við svo og fengum ís í ísbúðinni faxa-/fákafeni.
Á þriðjudaginn verður svo föndur-kvöld aftur hjá mömmu... alltaf nóg að gera hjá henni, aldrei meira en þegar hún er í fríi
Svo eru alls kyns hlutir á dagskránni á næstunni... krílahittingur, saumaklúbbur hjá versló-stelpunum, saumaklúbbur hjá kríla-stelpunum foreldraviðtal á leikskólanum og margt margt fleira sem við munum ekki í augnablikinu. Hvernig venjulegt fólk fer að því að eiga nokkur börn, vera í fullri vinnu og taka þátt í félagslífi er okkur með öllu óskiljanlegt. Útskýringar eða leiðbeiningar þess efnis eru sko vel þegnar!
Kveðja, stubbalínurnar.
Hvað um það. Við systurnar döfnum vel, Júlía alltaf jafn dugleg að drekka, ekki enn farin að heimta neitt annað og staðbetra en mjólkina og Sara er alltaf jafn dugleg við að koma fólki á óvart með orðheppni sinni.
Júlía fór í 3ja mánaða skoðun um daginn og var orðin alveg 61,5 sm og rúm 5800 gr. Fékk fyrstu sprautuna og argaði svoleiðis á lækninn með móðgunarsvip að við höldum að honum hafi orðið svolítið um og ó greyinu.
Mamma átti afmæli á fimmtudaginn í síðustu viku, fyllti loksins 26 árin (hún þakkar kærlega fyrir afmæliskveðjurnar). Hún gerði svosem ekki neitt í tilefni dagsins, en daginn eftir bakaði hún köku handa þeim sem villtust í heimsókn í sveitina, engin ráðgerð afmælisveisla þannig séð. Nú má sko byrja að telja niður dagana til jóla... (það er sko ekki leyfilegt fyrr en eftir að afmælið hennar er búið
)Í gær fórum við svo öll fjölskyldan í keilu í Öskjuhlíðinni með Kjartani, Andreu, Ásgeiri og bumbubúanum þeirra. Það var alveg rosalega gaman, hittum akkurat á diskó-keilu. Eftir keiluna fórum við svo og fengum ís í ísbúðinni faxa-/fákafeni.
Á þriðjudaginn verður svo föndur-kvöld aftur hjá mömmu... alltaf nóg að gera hjá henni, aldrei meira en þegar hún er í fríi

Svo eru alls kyns hlutir á dagskránni á næstunni... krílahittingur, saumaklúbbur hjá versló-stelpunum, saumaklúbbur hjá kríla-stelpunum foreldraviðtal á leikskólanum og margt margt fleira sem við munum ekki í augnablikinu. Hvernig venjulegt fólk fer að því að eiga nokkur börn, vera í fullri vinnu og taka þátt í félagslífi er okkur með öllu óskiljanlegt. Útskýringar eða leiðbeiningar þess efnis eru sko vel þegnar!
Kveðja, stubbalínurnar.
8.10.2007
Viltu ferðast eins og forsetinn??
Jæja, þá er mamman búin að ákveða að selja uppáhalds-bílinn sinn. Það er liður í því að láta gamlan draum verða að veruleika og kaupa sportbíl... svona áður en hún verður of ráðsett mamma (eða of virðulegur endurskoðandi)... Ekki seinna vænna þar sem það má kannski koma 2 barnabílstólum fyrir í "aftursætinu" á sportbíl, en það er ekki séns að koma þeim 3 fyrir (nei, það er samt ekki annað á leiðinni strax... alveg róleg sko, litla skottið er ekki nema tæplega 3ja mánaða) 
Eftir að hafa mátað bílinn við endurskoðendatitilinn er hún þó ekki frá því að þetta tvennt færi jú ótrúlega vel saman, enda mjög virðulegur bíll á ferð (nema einhver vilji mótmæla því að bíll forsetans sé virðulegur!)
Eðalvagninn selst þó ekki ódýrt, enda með trega og söknuði sem við munum kveðja kerruna sem hefur þjónað okkur vel í 3 ár... (hann er líka bara flottur sko)!

Hér koma svo söluupplýsingarnar:
Bílasala: Höfðahöllin
Mercedes Benz S 350 Turbo Diesel
Árgerð 1994 - fluttur in frá DE 1999
Ekinn 330.000
Sjálfskiptur
Dökkgrár
Grátt leður að innan
Glertopplúga
16" Álfelgur
Sumardekk
Negld vetrardekk
Sumardekk - aukagangur - ný
10 (CD) diska magasín í skottinu
Bose hátalarakerfi
Ásett verð 1.490 þús
Man ekki meira í bili...

4.10.2007
Smá fréttir...
frá okkur skvísunum.
Það er svo langt síðan mamma gaf sér tíma til að skrifa hérna að við ákváðum að taka okkur til systurnar og henda inn smá fréttum af okkur.
Ekki það að mikið sé að frétta... lífið heldur bara áfram sinn vanagang hérna á 'Gedavöllunum'.
Ég er alltaf voða dugleg að fara á leikskólann og líkar vel, er allavega alltaf dugleg að leira þar sem mamma fær alltaf glaðning þegar hún sækir mig á leikskólann eftir leir-daga... það er, leirklessur í fötunum mínum. En það næst úr svo hún kippir sér ekkert upp við það.
Um daginn komu Karlotta og Kiddi í heimsókn til okkar og við gáfum þeim kjúkling að borða. Ég vildi nú samt mest lítið borða og litla systir (ég verð sko að skrifa fyrir hana, hún er svo lítil að hún kann ekki að skrifa) fékk ekki neitt því hún drekkur bara mjólk.
Á sunnudaginn fórum við í matarboð til Kjartans, Andreu og Ásgeirs og það var rosalega gaman. Ég var búin að tala um það allan daginn að fara til Ásgeirs, Ásgeir þetta og Ásgeir hitt... Pabbi fór með mér út að labba fyrr um daginn, hann labbaði og ég hjólaði á þríhjólinu mínu, og ég tilkynnti mömmu það að ég ætlaði að hlaupa heim til Ásgeirs. Eitthvað var mamma nú að draga úr mér með það... sagði að það væri heldur langt að labba alla leið inn í Breiðholt á mínum stuttu fótum. Ég leyfði henni að ráða núna, kannski ég skokki þetta bara næst. Við fengum alveg rosalega góðan mat hjá þeim og við Ásgeir lékum okkur heillengi við að henda blöðru á milli okkar og horfa á Múmínálfana. Mig hlakkar sko heilmikið til að hitta Ásgeir frænda aftur.. næst er komið að okkur að bjóða þeim í mat
Mamma og pabbi fara að taka smá kipp í að bjóða fólki í mat bráðlega, enda komin ansi góð mynd á húsið núna... Friðrik frændi er búinn að vera svo duglegur að mæta til okkar og setja upp hurðir hjá okkur. Hann er bara alveg að verða búinn. Þá eru bara smá-viðvik eftir og þá getur fólkið farið að anda rólega.
Í síðustu viku ákváðu mamma og Dagrún frænka að hittast og föndra og buðu Ástu frænku að vera með líka. Mamma bjó til alls kyns góðgæti fyrir þær að kjamsa á en ég fór í heimsókn til ömmu á meðan svo ég væri ekki að fikta í öllum gersemunum þeirra. Þær ætla svo að hittast aftur næsta þriðjudag og föndra meira en annars skemmtu þær sér svo vel að þær eru búanr að ákveða að hittast eitt kvöld í mánuði... Öllum sem langar að föndra (já eða bara blaðra við þær) er velkomið að vera með!
Ekki á morgun heldur hinn (laugardag) ætlum við að fara í afmælið hans Magnúsar úti í sveit. Mamma er búin að kaupa voða fína afmælisgjöf handa honum.
Jæja, þá ætlum við að reyna að plata mömmu til að setja inn nokkrar myndir af okkur... Aldrei að vita nema það takist.
Kveðjum í bili, prinsessurnar.

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 27477
Samtals gestir: 8710
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 16:37:03