Blogg

28.8.2007

Bara að...

...láta vita að við erum ennþá á lífi.
Síðasta mánudag, 20. ágúst, fórum við í 6 vikna skoðunina. Þá kom í ljós að litla systir var ekkert svo lítil lengur, búin að lengjast um 4 sm og orðin heilir 56 sm. Til gamans má geta að það er fæðingarlengd pabbans, en báðar prinsessurnar feta í fótspor mömmunnar upp á sentimetra í fæðingarlengdinni. Hvað þyngdina varðar var prinsessan orðin rúmlega 4600 grömm og fylgir kúrfunni þannig alveg
Það hefur svo allt verið á fullu í húsinu til þess að koma því í sæomasamlegt stand fyrir skírnina á milli þess sem mamman rembdist við að föndra boðskort... já, sumir læra seint af reynslunni
Í gær komu Ásta frænka og Vala Kristín í heimsókn og systurnar (mamman og Ásta) tóku smá syrpu á herbergi eldri prinsessunnar. Fyrir þá sem ekki þekkja til fjölskyldunnar hefði þetta ævintýri á tímabili eflaust einna helst minnt á Abbott & Costello (Steina og Olla) en afraksturinn varð sko ekkert til að skammast sín fyrir. Nú er bara að mæta á svæðið til að sjá meistaraverkið
Jæja, farin til að setja hillurnar í skápinn í anddyrinu...

Skrifað 28.8.2007 kl. 20:11 af Strumpunum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.8.2007

Barnaskari og saumaskapur

úff púff... þetta hefur nú verið meiri helgin!
Við höfum sko ekki legið á liði okkar (jah, nema sú yngsta auðvitað sem gerir mest lítið annað en að liggja og hrjóta ) þar sem mamman fór með ömmunni í smá leiðangur í síðustu viku. Þær lögðu af stað með það fyrir augum að kaupa gardínustangir í öll svefnherbergin og viti menn, þeim tókst að kaupa það í fyrstu búðinni sem litið var inn í (Álnabæ í Síðumúla - snilldarverslun). Þær létu þó ekki þar við sitja þar sem þær ákváðu "á leiðinni út" að kíkja aðeins á gardínuefnin og varð mamman dolfallin yfir einu gardínuefninu og þótti alveg tilfallið í gardínur/gluggatjöld í herbergi eldri prinsessunnar. Hún endaði svo á því að kaupa í gardínuvængi/gluggatjöld og sængurföt í stíl og arka af stað með stórar fyrirætlanir í farteskinu - að sauma þetta allt sjálf.... jáh, right hugsa flestir sem þekkja hana... en, það sem þið vitið eflaust ekki er að hún var með leynivopn í bakhöndinni. Þannig er nefnilega mál með vexti að hana hafði lengi dreymt um að eignast saumavél sem gæti saumað myndir og ákvað að láta verða af því þar sem þau hjónin fengu smá aur í brúðkaupsgjöf. Amman og afinn keyptu svo dýrgripinn í útlandinu eftir að mamman hafði legið yfir netinu og valið sér saumavél sem var lítil og nett, ódýr en uppfyllti jafnframt fyrrgreindar kröfur. En nóg um það... saumavélin er svo frábær að ef hún væri eitthvað betri þá myndi hún sauma þetta sjálf án leiðsagnar eða annarra afskipta. Helgin hefur svo farið í saumaskapinn og er hann nú langt kominn... aldrei að vita nema allt heila klabbið líti dagsins ljós fyrir skírn.
Í gær kom svo Anna Soffía frænka í heimsókn til okkar og fékk að gista yfir nótt á meðan foreldrarnir skelltu sér í afmælisveislu. Eldri prinsessan var himinlifandi yfir að fá loksins "barn" sem væri ekki svona brothætt og mátti knúsa og klappa að vild. Þær skelltu sér svo í bað saman hjá ömmu en myndir af herlegheitunum koma um leið og aðaltölvan á heimilinu kemur úr viðgerð. Það var því ekki heiglum hent að koma öllum krakkaskaranum í bólið fyrir hádegislúrinn í dag og hreinlega ekki á færi einnar manneskju (við bara skiljum alls ekki hvernig amma vala fór að þessu með 3 krakkaorma, alla á sama aldrinum... díses!)
En jæja, ætlum að halda áfram að krota niður gestalistann fyrir skírnina (svona svo við sjáum hvað það þarf að baka mikið)... svo þarf að panta skírnartertuna...
Hver ætlar að borða mikið?

Skrifað 19.8.2007 kl. 23:48 af Strumpunum

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.8.2007

Montrass vikunnar...

...er án efa mamman í fjölskyldunni...
Smá grín. Sumar eru bara svo ánægðar því þegar hún hafði samband við Opin Kerfi í dag kom í ljós að þeir eru að panta nýtt móðurborð í ferðavélina. Jess! Það þýðir aðeins eitt... ekki fleiri viðgerðir í formi "uppfærslu á bios" sem jafngildir bara annarri ferð uppeftir með jafn bilaða vél og öðrum 5-virkra-daga-viðgerðartíma (og tilheyrandi tölvuleysi). Þá er það eina sem er upprunalegt í vélinni einhverjir external hlutir eins og rafhlaðan, lyklaborðið, geysladrifið og sjálfur tölvuramminn... Það var skipt um skjáinn í henni strax í upphafi þar sem sá fyrsti var rispaður (kom rispaður að utan), skipt um harðan disk í febrúar (hinn var ónýtur/gallaður), skipt um móðurborð núna - allt saman á kostnað HewletPackard og svo var pabbinn að enda við að fjárfesta í nýju vinnsluminni í vélina...  Nú er bara að bíða eftir að þeir klári að gera við hana.
Stundum er alveg ótrúlegt hvaða "viðgerðir" fyrirtæki fara út í þegar maður kemur með hluti í viðgerð. Hver kannast ekki við að fara með bíl í viðgerð og bilanalýsingin hljóðar eitthvað á þessa leið: "Bíllinn drepur á sér ef maður þarf að bremsa eða beygja til hægri nema maður banki þrisvar í húddið og setja bílinn í bakkgír"... svo þegar maður sækir bílinn og biður um lýsingu á því sem var gert er það eitthvað eins og: "nú, við byrjuðum á því að skipta um stefnuljósaperu vinstra megin að aftan og bættum vatni á rúðupissið...." Arg!
En nóg af þessu röfli. Eldri skottan stendur sig með prýði í leikskólanum, finnst rosalega gaman að öllum þessum krakkaskara. Nú er bara að vona að hún finni sig á meðal 5 ára gamalla barna og smælingja á hennar aldri (þau eru svo lítil eitthvað). Deildirnar eru nefnilega blandaðar krökkum fæddum allt frá 2002 til 2005 en á deildina hennar vantar 2004 árganginn sem ég held að hún eigi einna helst samleið með hvað þroska varðar. En að öðru leyti líst mér alveg rosalega vel á leikskólann, starfsfólkið þar og alla aðra tilhögun. Við vonum bara að aldursbilið komi ekki að sök og prinsessan finni sér leikfélaga.
Yngri prinsessan fór í smá myndatöku í dag, mömmuna langaði svo í mynd til þess að setja í boðskortin í skírnina... Nú er bara að bíða og sjá hvort myndirnar heppnuðust  Nú er efst á óskalistanum að komast á námskeið í ljósmyndun og myndvinnslu...  Hættir mann einhverntímann að langa að læra eitthvað nýtt?
Jæja, man ekki lengur hvað ég ætlaði að skrifa... svo ég held ég láti þetta duga í bili (púff... ef einhver hefur enst til að lesa alla þessa romsu um ekki neitt).
Yfir og út, Mamman.

Skrifað 16.8.2007 kl. 22:39 af Strumpunum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.8.2007

Gullkorn í boði mömmunnar

Langaði að bæta inn smá gullkorni í viðbót við færsluna áðan, svona fyrir þá sem leiðist og vantar eitthvað sér til dægrastyttingar...
Eftirfarandi er lýsandi dæmi fyrir hinar ótal heimsóknir mömmunnar í ef ekki bara flestar búðir höfuðborgarsvæðisins á undanförnum mánuðum, í tengslum við húsbygginguna.

Sögusvið: Húsasmiðjan - hreinlætistækjadeild

Mamman: Heyrðu, gætir þú nokkuð sagt mér hvað plast-vaskurinn kostar?

Afgreiðslumaðurinn verður eitt spurningamerki í framan??

Mamman: Grái plast-eldhúsvaskurinn þarna?

Afgreiðslumaðurinn segir þá með hneykslissvip: Við erum ekki með neina plast-vaska!

Mamman: Hmm...

Afgreiðslumaðurinn tekur þá á það ráð að elta mömmuna að umræddum plast/ekki-plast eldhúsvaski...

Mamman: Þessi hérna (og bendir á sýningarvaskinn)

Afgreiðslumaðurinn (mjöööög móðgaður að því er virðist): Þetta er ekki plast... þetta er GRANÍT!

Mamman: Já eða það, hvað kostar hann mikið...

---------------------------

Ekki mikið að velta því fyrir sér úr hverju vaskurinn var. Hann var flottur. Langaði í svona. Punktur!

Hahahaha.... 

Jæja... kominn tími á svefn!

Skrifað 12.8.2007 kl. 1:59 af Strumpunum

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.8.2007

Biluð tölva, leikskóli og skírn

Skoða nánar

6.8.2007

Súkkulaði, súkkulaði og meira súkkulaði

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 9
Gestir í gær: 3
Samtals flettingar: 27423
Samtals gestir: 8684
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 08:58:59