Blogg
17.2.2007
Allt í vinnslu
Þá er eitthvað komið inn á síðuna, ekki mikið, en vonandi eitthvað til að hafa ofan af fyrir ykkur í smá stund.
Það er ekkert allt of mikið að frétta núna, mikið að gera hjá öllum. Pabbi er byrjaður í nýju vinnunni sinni eftir smá tafir á gamla staðnum, og gæti ekki verið ánægðari... allt annað vinnuumhverfi og meira að hans skapi. Brjálað að gera í vinnunni hjá mömmu, í viðbót við skólann, sem er ekki alveg nógu gott.
Amma og afi ákváðu að skreppa til útlanda í nokkra daga. Í húsinu er núna búið að setja rafmagnið og heita vatnið á svo við getum fljótlega byrjað að einangra veggina að innan, setja upp milliveggina, sparsla, mála, setja upp innréttingar, klósett, vaska og fleira og svo flytja bara inn... Við erum samt ekki búin að gera neina áætlun um "innflutninginn" þar sem enn er of mikið eftir eins og sést á upptalningunni. Mér finnst alveg rosalega gaman að fara í "nýja húsið".
Jæja... mamma er búin að setja inn myndir fyrir nóvember, desember, janúar og febrúar en ekki mikið af myndum fyrir seinni tvo mánuðina.
Ég er alveg rosalega dugleg að tala og er nánast farin að geta haldið uppi samræðum. Fór með ömmu í klippingu um daginn, enda veitti ekki af... komin með dágóðan lubba. Ég vesenaðist ekkert eða grét, bara fylgdist með konunni klippa mig með miklum áhuga, eina vandamálið var að ég sneri hausnum svolítið mikið þegar ég var fylgjast með henni...
Jæja, skólinn búinn í dag... mamma þarf að fara heim að vinna núna. Meira seinna!
