Blogg

24.1.2007

Enn fleiri fréttir

Mamma og pabbi fóru í dag á fasteignasöluna og skrifuðu undir kaupsamninginn fyrir nýja húsið (loksins). Þau eru því búin að færa öll sín viðskipti yfir til Kaupþings... það á því eftir að koma í ljós hvernig þeir standa sig þjónustulega séð. Við höfum samt engar áhyggjur þar sem þau völdu sér lítið og þægilegt útibú úti á landi þar sem þau hafa einn og sama þjónustufulltrúann til þess að verða við öllum þeirra óskum og sem er ekki að þjónusta 5.000 aðra einstaklinga! Ekki nóg með það heldur fengu þau tilboð í íbúðina í gær, gerðu móttilboð í dag og það var svo samþykkt mótbárulaust... Íbúðin er því líka seld, eftir einungis 10 daga á söluskrá.

Í kvöld fórum við svo út að borða á uppáhalds veitingastaðinn hennar mömmu... svona til þess að fagna góðu gengi. En svo er mamma komin með svo mikið samviskubit yfir því að eyða öllum þessum peningum að hún er farin að telja mínúturnar sem hún þarf að vinna í yfirvinnu til þess að hafa inn fyrir herlegheitunum. Maturinn var samt algjört æði og þjónustan frábær! Við mælum hiklaust með Laugaás!!

Dagmamman er alltaf jafn ánægð með mig... ég er alltaf svo dugleg hjá henni. Ég er núna farin að tala í heilum setningum, 20 mánaða gömul í gær! Dæmi um það er "Sara súpa líka", "Hafa ljósið" (þegar það á ekki að slökkva á lampanum þegar ég er að fara að sofa), "Mamma og pabbi", "pabbi vinna" og þar fram eftir götunum. Ég er líka svo dugleg að sjá til þess að krakkarnir framfylgi skipunum dagmömmunnar að þegar einhver ætlar að lauma sér í burtu og dagmamman kallar á hann/hana, að hef hann/hún hlýðir ekki, þá fer ég og sæki viðkomandi.

Um daginn fórum við í voða fínan mat til Magna og Dagrúnar og ég var rosa dugleg að borða pasta hjá þeim. Eftir matinn kíktum við svo í nýja húsið og frystum á okkur nefbroddana. Myndir frá þeirri heimsókn er hægt að sjá á heimasíðunni hennar Dagrúnar ;-) Við bíðum svo spennt eftir því að þau láti verða af því að kaupa næsta hús við hliðina á okkar svo við getum byggt göng á milli húsanna og pott í öðrum garðinum en sundlaug í hinum ;-)

Jæja, nóg komið af blaðri í bili... Það er helling sem við ætluðum að skrifa en munum barasta ekki nokkurn skapaðan hlut lengur enda farið að líða ansi nálægt miðnætti og ég að sjálfsögðu löngu farin að sofa á mínu græna eyra :-) Bless í bili, prinsessan.

Skrifað 24.1.2007 kl. 23:22 af Prinsessunum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.1.2007

Fréttir!

Þá er sko nóg að frétta af þessu litla heimili. Heimilið verður ekkert sérstaklega lítið héðan af, alveg sama frá hvaða sjónarhorni er litið. Mamma og pabbi voru að kaupa stærra húsnæði, þannig að ég fæ sér herbergi. Og það eru meira að segja líkur til þess að jafnvel litla systkynið mitt sem ég fæ í byrjun júlí á þessu ári fái líka sér herbergi (þegar það er orðið nógu stórt að sjálfsögðu).

Með öðrum orðum þá er bæði að fara að bætast við fjölskylduna eins og einn meðlimur í viðbót og svo er húsnæðið að rúmlega þrefaldast að stærð. Mömmu til mikillar ánægju. Þá er bara eftir að ná að selja íbúðina okkar.

Mamma náði að klára önnina sína í skólanum með ágætum og er því núna að byrja síðustu önnina sína í skólanum. Hún er líka að skipta um deild í vinnunni og fara meira yfir í tölvuendurskoðun. Pabbi gerir gott betur og skiptir um vinnustað í lok mánaðarins.

Ég er rosalega dugleg við allt, og þá sérstaklega að tala. Skemmti mér hátíðlega yfir hátíðirnar, en var þó svolítið lasin yfir sjálf jólin. Eignaðist svo litla frænku á Þorláksmessu sem hefur fengið nafnið Anna Soffía eftir ömmu sinni heitinni. Í gær fór ég svo í skírnarveislu til litla frænda, en hann fékk nafnið Magnús Þór.

Fyrir jólin fór ég svo í jólamyndatöku og fylgir eitt stykki mynd hér með... eða tvær ;-)

Skrifað 8.1.2007 kl. 23:21 af Prinsessunum

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 8
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 21
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 27493
Samtals gestir: 8713
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 12:11:43